Þjónusta

Fjármögnun og fjárhagsleg endurskipulagning

Deloitte Legal býður upp á alhliða og aðgengilega lögfræðiráðgjöf fyrir fyrirtæki af öllum stærðum, opinbera aðila og einstaklinga og hefur yfir að ráða einu stærsta neti lögmanna og lögfræðinga í heimi eða um 2.000 talsins í yfir 80 löndum.

Hjá Deloitte Legal á Íslandi starfa fjölmargir lögfræðingar og lögmenn með víðtæka reynslu á margvíslegum sviðum lögfræðinnar. Sérfræðingar okkar veita faglega og óháða ráðgjöf á þeim kjarnasviðum sem nýtist viðskiptavinum okkar hvort heldur í daglegum úrlausnarefnum eða stærri ákvarðanatökum.

Til að tryggja heilbrigðan rekstrargrundvöll og undirbyggja vöxt þurfa stjórnendur sífellt að leitast við að halda fjármögnun og skipulagi sinna fyrirtækja í góðu standi. Í því samhengi þarf gjarnan að huga að endurfjármögnun eldri lána, nýjum lántökum, útgáfu skuldabréfa útgáfu nýs hlutafjár og jafnvel skráningu á markað. Þá geta mál þróast þannig að fyrirtæki þurfi að nýta sér tiltekin úrræði til endurskipulagningar, á borð við greiðslustöðvanir og nauðasamninga. Í þessum ferlum er að mörgu að huga þar sem hagsmunir geta verið miklir og hagsmunaaðilar margir.

Deloitte Legal hefur yfir að búa viðmikilli reynslu á sviði fjármögnunar og fjárhagslegrar endurskipulagningar, að viðbættri þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu. Í þessum málum, eins og öðrum, er áhersla þjónustunnar á að viðskiptavinum sé gert kleift að ná þeim fjárhagslegu markmiðum sem þeir stefna að á sem skilvirkastan máta.

Þjónusta Deloitte Legal á sviði fjármögnunar og fjárhagslegrar endurskipulagningar

Meðal þeirrar þjónustu sem Deloitte Legal veitir á sviði fjármögnunar og fjárhagslegrar endurskipulagningar er:

  • Aðstoð breytingar á hlutafé og ýmis ráðgjöf um málefni hluthafa eða eigenda fyrirtækja
  • Gerð lánasamninga, skuldabréfa og annarra fjármögnunarskjala
  • Aðstoð í fjármögnunarferli, samskipti við lánveitendur og fjárfesta
  • Ráðgjöf og aðstoð við skráningu félaga á skipulega verðbréfamarkaði
  • Aðstoð í greiðslustöðvun, nauðasamningum og gjaldþrotaskiptum
  • Samningagerð við kröfuhafa og birgja í tengslum við endurskipulagningu
  • Aðstoð við ýmis leyfismál og samskipti við Seðlabankann / Fjármálaeftirlitið
  • Ráðgjöf í tengslum við útgreiðslur til eigenda eða uppskiptingu fyrirtækja í tengslum við endurskipulagningu
  • Aðstoð við eigendur fyrirtækja í tengslum við kynslóðaskipti
  • Gerð kaupmála, skilnaðarsamninga og erfðarskrár, auk aðstoð við skipti
  • Úrlausn ágreiningsmála, s.s. á sviði málflutnings fyrir dómstólum

 

Þá hafa lögfræðingar og lögmenn Deloitte Legal aðgengi að ráðgjöfum Deloitte hér heima og á heimsvísu, svo sem á sviði fjármálaráðgjafar og endurskoðunar, sem er til þess fallið að auka gæði þjónustunnar og auðveldar þjónustu við fyrirtæki við hvers kyns fjármögnunar- og endurskipulagningarferli þvert á landamæri.

Nánari upplýsingar veita: