Þriðjudaginn 4. maí næstkomandi stendur Deloitte í Danmörku fyrir vefviðburði undir yfirskriftinni Next-generation procurement: More value for less resources.
Heimsfaraldur kórónuveirunnar COVID-19 hefur haft gríðarleg áhrif á framleiðslu- og aðfangakeðjur fyrirtækja og stofnana. Á þessum vefviðburði verður farið yfir þau stakkaskipti sem hafa orðið, sem og þá strauma og stefnur sem áætla má að einkenni innkaup á aðföngum í framtíðinni.
Framsögumenn:
- David Colgan, forstöðumaður SAP hjá Deloitte á Norðurlöndum
- Patrik Andersson, liðsstjóri hjá Deloitte í Svíþjóð
Viðburðurinn er opinn öllum og er skráning öllum að kostnaðarlausu.
Vert er að nefna að viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 07:00 að íslenskum tíma (klukkan 09:00 að dönskum tíma).
Upptaka af viðburðinum verður send á alla skráða þátttakendur að honum loknum.