Þjónusta

Bókhalds- og launaþjónusta

Deloitte tekur að sér kjarnastarfsemi fjármáladeilda

Fyrirtæki eru sífellt að hagræða í rekstri og skipulagi til að styrkja sig í samkeppni á markaði. Einkum getur verið krefjandi og kostnaðarsamt að viðhalda hæfni sem þarf innan fjármáladeilda við reikningshald, bókhald og launavinnslu. Vilji stjórnendur auka sveigjanleika og beina kröftunum að meginstarfsemi fyrirtækisins enn frekar þá er útvistun hagkvæmur möguleiki samanborið við að halda fjármálastarfseminni innanhúss.

Þjónusta Deloitte

Deloitte býður upp á útvistunarlausnir innan reikningshalds- og launavinnslu til skemmri eða lengri tíma. Dæmi um verkefni sem Deloitte getur annast:

  • Bókhald, afstemmingar og uppgjör
  • Launavinnslur
  • Skipulagning á viðskiptaferlum í fyrirtækjum
  • Árshluta- og ársuppgjör
  • Skattauppgjör og skattaskýrslur
  • Aðstoð við innanhússkýrslur fyrir stjórnendur
  • Aðstoð við áætlanagerð
  • Aðstoð við innleiðingu og uppsetningu bókhalds- og upplýsingakerfis

Nánari upplýsinga veitir:

Sunna Dóra Einarsdóttir

Sunna Dóra Einarsdóttir

Meðeigandi

Sunna Dóra er meðeigandi hjá Deloitte. Sunna er með M.Sc. í hagfræði og stjórnun frá Háskólanum í Árósum, Danmörku.... Meira