Um okkur

Jafnvægisvog FKA

Deloitte er stoltur bakhjarl Jafnvægisvogarinnar

Deloitte er stoltur bakhjarl Jafnvægisvogarinnar, hreyfiaflsverkefni sem miðar að því að jafna hlutfall milli kynja í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi.

Það er ánægjulegt að Deloitte hafi hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2019, en viðurkenningar eru veittar til þeirra fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga sem hafa markvisst unnið að því að auka jafnvægi kynja á efri stjórnunarþrepum.

Deloitte hefur um árabil unnið með jafnréttissjónarmið að leiðarljósi. Að fjölga konum í stjórnunarstöðum og veita starfsfólki tækifæri til að nýta og virkja styrkleika sína, hæfni og krafta er eitt af forgangsmálum í stefnu Deloitte. Við höldum áfram vegferðinni og erum á réttri leið.

Did you find this useful?