Þjónusta
Sérsniðin þróun
Sérsniðnar lausnir sem henta þínum rekstri
Oft eru kröfur viðskiptavina það sértækar að sérsniðin lausn er besti kosturinn. Innan okkar raða eru reyndir sérfræðingar sem tryggja öruggar lausnir sem passa vel inn í arkitektúr þinna kerfa. Við greinum og komum auga á óskilvirkni og sóun í rekstri, hvort sem um er að ræða í rekstri kerfa eða í kerfunum sjálfum, og leiðbeinum í framhaldinu með bestun á uppsetningu og vinnulagi.
Okkar sérfræðiþekking:
- Þróun og smíði lausna, bæði framenda og bakenda
- Samþættingar kerfa
- Útskipting eldri kerfa
- Ferlaráðgjöf – við berum þína verkferla saman
við industry standard
Nýleg verkefni
Sérsniðið gæðakerfi fyrir framleiðslu Algalíf
Algalíf er líftæknifyrirtæki á Ásbrú á Reykjanesi sem að sérhæfir sig í ræktun á tilteknum tegundum af smáþörungum með það að markmiði að einangra úr honum lífvirkt andoxunarefni sem heitir astaxanthin.
Deloitte aðstoðaði Algalíf við að umbreyta lotuskráningakerfi Algalíf, sem áður var eingöngu á pappírsformi, í sérhannað stafrænt form sem eykur aðgengi og rekjanleika ásamt því að bæta skilvirkni við lotuskráningar.
Sjálfvirkt landamæraeftirlit á Keflavíkurflugvelli fyrir Ríkislögreglustjóra
Verkefnið fólst í því að breyta ferlum við framkvæmd landamæraeftirlits og innleiða að taka myndir og fingraför af öllum þriðja ríkis borgurum við komu til Íslands. Um leið og sjálfvirkt landamærakerfi var innleitt, þurfti að tryggja að hefðbundið landamæraeftirlit og skilvirkni á Keflavíkuflugvelli myndi ekki raskast.
Deloitte aðstoðaði embættið við þær áskoranir sem það stóð frammi fyrir við innleiðinguna sem krafðist sérstakrar sérhæfingar og þekkingar á landamæraeftirliti og ferlum því tengdu.
Ökuvísir VÍS
VÍS er fyrsta tryggingafélagið á Íslandi til að bjóða byltingarkennda nýjung í ökutækjatryggingum þar sem ökutækjatryggingar eru sérsniðnar að því hversu vel ökumaður keyrir. Með appi og kubbi sem staðsettur er í bílnum er aksturlagið mælt og aksturseinkunn gefin sem byggir á hraða, hröðun, hraða í beygjum, hemlun og símanotkun undir stýri.
Öflugt teymi frá VÍS og Deloitte fengu til liðs við sig sérfræðinga á sviði fjarskipta, gagnavinnslu, forvarna, leikjunar, opinberra reglugerða, persónuverndar og samgöngumála til að þróa lausnina á mettíma.
Stafrænt Ísland - stafræn umsókn um fæðingarorlof fyrir alla verðandi foreldra
Undanfarin tvö ár hefur stafræn umsókn um fæðingarorlof verið í stöðugri þróun hjá Stafrænu Íslandi og Vinnumálastofnun.
Síðan opnað var fyrir stafrænar umsóknir í byrjun árs 2022, hefur áhersla verið
lögð á að auka og bæta virkni umsóknarferilsins sem auðveldar verðandi
foreldrum enn frekar að sækja um fæðingarorlof á einfaldan og notendavænan hátt.
Deloitte hefur aðstoðað Stafrænt Ísland að þróa og innleiða nýjungar fyrir vef fæðingarorlofssjóðs með fjölgun tegunda umsókna og sjálfvirkara ferli.
Griðarleg aukning hefur orðið á notkun stafrænna umsókna, í upphafi árs 2022 var hlutfall stafrænna umsókna aðeins um 20% heildarumsókna en var orðið nærri 83% undir lok árs.
Reiknað er með áframhaldandi þróun og vinnu við umsóknarferlið í samstarfi við Deloitte.