Fimmtudaginn 17. september stendur Deloitte í Danmörku fyrir vefviðburði sem ber yfirskriftina SAP S/4HANA: The times They are a-changin.
Árið 2020 er svo sannarlega vitnisburður um mikilvægi góðrar aðlögunarhæfni fyrirtækja og eru allmörg fyrirtæki sem nota SAP farin að huga að og skipuleggja umbreytinguna í SAP S/4HANA.
Meðal þess sem farið verður yfir á þessum vefviðburði Deloitte er:
- Hvernig best skal staðið að umbreytingunni í SAP S/4HANA
- Hvernig hámarka má arðsemi SAP-fjárfestingar
- Hvernig lágmarka má tæknikostnað
Vefviðburður Deloitte er opinn öllum og er skráning öllum að kostnaðarlausu.
Vert er að nefna að viðburðurinn fer fram á ensku og hefst klukkan 07:00 að íslenskum tíma (klukkan 09:00 að dönskum tíma).
Upptaka af viðburðinum verður send á alla skráða þátttakendur að honum loknum.