Faglegt efni
Stjórntæki stjórnvalda -aðhaldstæki kjósenda
Vísitala félagslegra framfara
Morgunverðarfundur í Arion banka 19. október 2017
Hvernig geta kjósendur fylgst með því að stjórnvöld ráðstafi þjóðartekjum þannig að þær komi sem flestum til góða?
Á morgunverðarfundi í Arion banka fimmtudaginn 19. október verður kastljósinu beint að vísitölu félagslegra framfara (VFF – Social Progress Index), sem Social Progress Imperative stofnunin tekur saman og gefur út árlega. Hugmyndafræðin að baki VFF er að setja á oddinn það sem skiptir tilveru fólk mestu máli. Vísitalan er lykilverkfæri við stefnumótun en líka öflugt aðhaldstæki kjósenda.
Fundurinn er haldinn í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19.
Húsið opnar kl. 08:30 með léttum morgunverði.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Upplýsingar um dagskrá og skráningarform má finna á vefsíðu Arion banka hér.