Þjónusta
Samþætting kerfa
System Integration
Fyrirtæki nota ýmiskonar hugbúnað í starfssemi sinni, bæði staðlaðan og sérsniðinn. Ráðgjöf og þjónusta Deloitte á þessu sviði nær til greiningar, hönnunar, forritunar, prófana og gangsetningar hugbúnaðar, auk ráðgjafar og aðstoðar við viðhald núverandi hugbúnaðar.
Hjá okkur starfa ráðgjafar og hugbúnaðarfólk með reynslu og viðtæka menntun á þessu sviði. Þar má nefna forritarara, verkfræðinga, tæknifræðinga, viðskiptafræðinga, kennara og hagfræðinga.
Viðhald og þróun hugbúnaðar (Software development and maintenance)
Ráðgjöf okkar spannar vítt svið og inniheldur m.a.:
- Stefnumarkandi ráðgjöf um hönnun og uppbyggingu á hugbúnaði
- Víðtæka þekkingu á forritunarmálum s.s. JAVA, .NET, LADDER, DELPHI, C, C++ og C#
- Mikla og þekkingu og reynslu á gagnasöfnun og vinnu með ORACLE, MS-SQL, PostGRE, MySQL ofl.
Það er mikilvægt fyrir fyrirtæki í harðri samkeppni að vera með hugbúnað sem hjálpar þeim að hámarka árangur sinn. Deloitte hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að nýta hugbúnað sinn sem best og ná árangri í bestun hugbúnaðarferla.
Nemar, gagnasöfnun og úrvinnsla–Internet hlutanna (Internet of Things / Industrial Internet of Things)
Sérfræðingar Deloitte búa yfir mikilli þekkingu á ferlum í iðnaði. Tengingar og samskipti tækja við hugbúnað, söfnun upplýsinga og úrvinnsla þeirra gefur mynd af árangri. Söfnun gagna í gagnagrunn og úrvinnsla upplýsinga er ein af lykilforsendum þess að stjórnendur í framleiðslu geti tekið upplýstar ákvarðanir. Skilningur á framleiðsluferlum og tengingar við nema, forritun iðntölva og bestun iðnstýringa er einn hluti þeirrar þjónustu sem viðskiptavinum Deloitte býðst ásamt:
- Úttektum á stýringum og iðntölvuforritum
- Ráðgjöf á sviði búnaðar og notkunar hans
- Uppbyggingu og hönnun á netum í framleiðslu
- Aðstoð við gerð útboðslýsinga og eftirlit með innleiðingu
Hugbúnaðarrekstur
Komum inn með sérfræðiþekkingu í rekstri og viðhaldi á hugbúnaðarkerfum sem eru í mikilvægum rekstri.
Sértækar hugbúnaðarlausnir
Bjóðum sértækar hugbúnaðarlausnir ásamt rekstur, viðhaldi og þróun í nánu samstarfi við viðskiptavini.
Verkefnastýring og ráðgjöf
Veitum verkefnastýringu við innleiðingar og ráðgjöf við endurbætur á viðskiptaferlum og rekstur hugbúnaðarkerfa.