Deloitte og Samtök atvinnulífsins halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Tilgangur dagsins í ár er að skoða þau viðskiptatækifæri sem felast í sjálfbærri umbreytingu á starfsemi fyrirtækja, hvernig sjálfbærni getur laðað að framtíðarviðskiptavini, gefið samkeppnisforskot, opnað dyr að auknu fjármagni og mikilvægi þess að vita hvenær er stutt í grænþvott. Aðalfyrirlesari dagsins er Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndunum og meðeigandi.
Í kjölfar sameiginlegrar dagskrár verður boðið upp á vinnustofu fyrir leiðtoga fjármála og sjálfbærni þar sem við heyrum reynslusögur fyrirtækja af EU Taxonomy og eigum gagnlegar samræður
- Húsið opnar kl. 08:30.
- Sameiginleg dagskrá hefst stundvíslega kl. 08:45 og stendur til kl. 10:15.
- Kaffi, morgunhressing og tengslamyndun 10:15-10:30
- Vinnustofa 10:30-12:00
---
Fundarstjóri: Hugrún Elvarsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins.
- Opnun: Better Business – Better world! Why The World Needs Business to Lead on Sustainability! How Business Can Leverage Sustainability for Business Benefits!
Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndum og meðeigandi. - Hvar liggja siðferðisleg mörk sjálfbærni og hvenær er stutt í grænþvott?
Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi. - Pallborðsumræður: Er hægt að hagnast á sjálfbærni og má það
Umræðustjóri: Gunnar Sveinn Magnússon, meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deloitte á Íslandi.
- Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
- Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar
- Aðalheiður Jacobsen, eigandi og framkvæmdastjóri Netparta
- Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins
Kaffi og tengslamyndun
- Vinnustofa fyrir leiðtoga fjármála og sjálfbærni - praktísk nálgun á EU Taxonomy
Umræðustjóri: Margrét Helga Guðmundsdóttir
Reynslusögur í byrjun vinnustofu frá Brimborg, Eimskip, Landsvirkjun og Reginn.