Faglegt efni
19
Mar.
Viðburður
Sjálfbærnidagur atvinnulífsins og Deloitte
19 Mar. 2024 | Iceland
Samtök atvinnulífsins og Deloitte á Íslandi halda árlegan Sjálfbærnidag atvinnulífsins þar sem fyrirtæki á Íslandi geta sótt sér nýjustu þekkingu sem nýtist þeim í rekstri út frá sjálfbærni. Tilgangur dagsins í ár er að skoða þau viðskiptatækifæri sem felast í sjálfbærri umbreytingu á starfsemi fyrirtækja, hvernig sjálfbærni getur laðað að framtíðarviðskiptavini, gefið samkeppnisforskot, opnað dyr að auknu fjármagni og mikilvægi þess að vita hvenær er stutt í grænþvott. Aðalfyrirlesari dagsins er Claus Stig Pedersen, leiðtogi sjálfbærnimála Deloitte á Norðurlöndunum og meðeigandi.