Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn miðvikudaginn 16. september næstkomandi. Yfirskrift Sjávarútvegsdagsins í ár er: Aldan stigin.
Viðburðurinn verður rafrænn og sýndur í beinni útsendingu. Útsending hefst klukkan 08:30 og lýkur klukkan 10:00.
Sem fyrr mun Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte, fara yfir afkomu sjávarútvegsfyrirtækja fyrra árs og einnig, að þessu sinni, rekstur eldisfyrirtækja. Þá verða stuttir fyrirlestrar og ávarp frá fjármála- og efnahagsráðherra.
Dagskrá:
- Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Jónas Gestur Jónasson, löggiltur endurskoðandi hjá Deloitte
Glærur: Afkoma sjávarútvegsins 2019 - Rebekka Hilmarsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð
Glærur: Áhrif fiskeldis á nærumhverfi - Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS
Upptaka
Sjávarútvegsdagurinn - Yfirlit:
Hér má nálgast nánari upplýsingar um fyrri Sjávarútvegsdaga.